28.01.2010 / 19:53

Ólafur: Maður á að gera hlutina vel - annars er ekki þess virði að gera þá

Ólafur: Maður á að gera hlutina vel - annars er ekki þess virði að gera þá

Ólafur Stefánsson skoraði fjögur mörk í leiknum í dag og var valinn maður leiksins af mótshöldurum. Fyrirliðinn var rólegur og yfirvegaður í spjalli okkar og þessi mikli sigurvegari segir að hann hafi sett markið á Evrópumeistaratitilinn sjálfan fyrir mótið.

„Þetta er skrýtin tilfinning. Vanalega að komast í undanúrslit á maður að hoppa hæð sína í lofti og vera brjálaðir. En núna eins og það sé kominn smá hroki í mann. Þetta er bara eitt skref, stórt skref í áttina. Að hafa komist svona langt tvö mót í röð er orðið ásættanlegt. Svona á þetta að vera. En nú er ekkert annað en að halda áfram að rýna í hin liðin, vinna vel og koma svo brjálaðir til leiks í undanúrslitin. Það er bara frábært og það er mikill heiður að fá að vera í þessu liðið. Maður á að gera þetta vel, annars er ekki þess virði að gera það.“

Varstu búinn að setja markið á Evrópumeistaratitilinn fyrir mótið?
„Jájá. Það er engin ástæða til annars. Það sem þú átt möguleika á áttu að leyfa þér að dreyma um. Það er það sem við gerðum. Áður þegar þú vissir að þú áttir engan séns fyrir mörgum árum stefndu menn kannski á sjötta sæti eða eitthvað slíkt. Í dag er möguleikinn til, hvort sem hann er eitt prósent eða núll komma eitt þá áttu að stefna þangað.“

Hvernig leið þér sjálfum í leiknum?
Bara þokkalega. Nóri var auðvitað frábær. Margir stóðu upp. Aron var líka frábær, kúl hjá honum að koma svona inn og standa fyrir sínu. Þetta er orðið ansi þétt. Vignir var líka góður. Fyrir hann er þetta líka mikilvægt af því hann missti af Ólympíuleikunum, núna sýnir hann að hann á heima hérna. Hann spilaði rosalega vel og skynsamlega. Bjöggi kom inn aftur og tók nokkra bolta og Hreiðar líka. Ef við fáum okkar fimmtán bolta þá erum við skeinuhættir,“ sagði Ólafur.

Smelltu á fréttir til að lesa fleiri viðtöl og umsögn um leikinn.

Facebook Icelandair

Samskiptamiðlar

Næstu leikir og úrslit

Dagst.LeikurÚrslit
16.01 Ísland - Króatía 29 - 31
18.01  Ísland - Noregur 34 - 32
20.01   Ísland - Slóvenía 32 - 34
   22.01          Ísland - Ungverjaland  27- 21
   24.01          Ísland - Spánn  26 - 31
   26.01          Ísland - Frakkland