Vignir Svavarsson er vel hungraður í medalíu á EM. Vignir fór ekki á Ólympíuleikana en hann segir að eftir að Silver gelið kom frá Loga og Björgvini, gæti hann hugsað sér að byrja að framleiða svitalyktareyði til höfuðs því, undir nafninu Almost – Næstum því. Vignir var léttur þegar ég spjallaði við hann á hóteli strákanna í dag.
Hvað gerðuð þið í gær eftir leikinn gegn Noregi?
„Við vorum bara rólegir. Við fengum okkur að borða niðri í göngugötu, svo fórum við bara niður á hótel. Við Aron fórum og fengum okkur sushi, það var virkilega gott. Það er gott að brjóta þetta aðeins upp og fara í eitthvað annað en spaghetti bolognese. Þetta er reyndar orðið betra en á fyrsta degi, allt annað,“ sagði Vignir en ég spurði hvort hann væri bara ekki búinn að venjast þessu? „Jú, það er reyndar líklegast,“ sagði hann og brosti.
Vignir er einn af fáum leikmönnum liðsins sem var ekki á Ólympíuleikunum í Peking. Hann á því ekki silfurpening en strákurinn er staðráðinn í að næla sér í pening núna. „Ég hef einmitt oft sagt það í gríni að ef ég hefði farið á Ólympíuleikana þá hefði þetta ekki verið neitt silfur heldur gull! Auðvitað langar mig að vinna medalíu og ég stefni á hæsta stall. Það er ekkert annað í stöðunni,“ sagði Vignir en strákarnir hafa ekkert verið að ota silfurmedalíunum að honum til að egna hann.
„Nei þeir hafa látið það alveg vera. Ég hef svolítið verið að skjóta því að þeim eftir að þeir fengju silfrið og Fálkaorðuna að við sem komumst næstum því á Ólympíuleikana að við færum í gang með snyrtivöruframleiðslu gegn Silfrinu, gelinu hjá þeim félögum. Framleiða svitalyktaeyði sem heitir Almost. Þetta hefur fengið ágætar undirtektir en þetta er ekki komið lengra enn sem komið er,“ sagði Vignir við hlátrasköll.
Andinn í hópnum er væntanlega ekki að versna þessa dagana með góðu gengi?
„Andinn er bara góður. Menn voru alveg í skýjunum með að vinna í gær en við misstum okkur ekkert í gleðinni. Það er af því þetta er það sem við ætluðum okkur og þetta var bara eitt skref í áttinni að endastöðinni.“
| Dagst. | Leikur | Úrslit |
|---|---|---|
| 16.01 | Ísland - Króatía | 29 - 31 |
| 18.01 | Ísland - Noregur | 34 - 32 |
| 20.01 | Ísland - Slóvenía | 32 - 34 |
| 22.01 | Ísland - Ungverjaland | 27- 21 |
| 24.01 | Ísland - Spánn | 26 - 31 |
| 26.01 | Ísland - Frakkland |