29.01.2010 / 21:58

We need tickets! Íslendingum fjölgar stöðugt í Vín

We need tickets! Íslendingum fjölgar stöðugt í Vín

Íslendingum er að fjölga hér í Vín. Mikil eftirspurn er eftir miðum og HSÍ vinnur baki brotnu við að útvega miða. Við hittum Íslendinga fyrir framan höllina í dag sem voru að reyna að kaupa sér miða. Þau þekktust ekki öll innbyrðis og höfðu keyrt í 15 og 17 tíma til að komast til Vínar. Þau keyptu miða á úrslitaleikinn á 200 Evrur (um 36. þúsund krónur) en sáu ekki eftir því. Erfiðara er að fá miða á undanúrslitaleikina.

„Við keyptum hann á 200 Evrur. Við vorum búin að semja um 150 Evrur en svo kom einhver annar og bauð 200. Við það hækkaði verðið auðvitað. En það er alveg þess virði, það er betra en að vera á einhverri krá að grenja yfir þessu,“ sögðu þau bjartsýn. Almennt miðaverð á leikina eru 80 Evrur.

Búist er við að minnsta kosti 200 Íslendingum til Vínar á leikina. HSÍ leitar allra leiða til að fá sem flesta miða og er um að gera fyrir þá sem vita um lausa miða að hafa samband við það. Auðvelt er að finna kaupendur.

Á myndinni hér fyrir neðan eru frá vinstri þau Hjalti Brynjarsson, Íris Huld Christersdóttir, Hrönn Vilhjálmsdóttir, Telma Ríkharðsdóttir og Bjarki Gústafsson.

 

 

 

 

Facebook Icelandair

Samskiptamiðlar

Næstu leikir og úrslit

Dagst.LeikurÚrslit
16.01 Ísland - Króatía 29 - 31
18.01  Ísland - Noregur 34 - 32
20.01   Ísland - Slóvenía 32 - 34
   22.01          Ísland - Ungverjaland  27- 21
   24.01          Ísland - Spánn  26 - 31
   26.01          Ísland - Frakkland