„Maður spilar aldrei betri en andstæðingurinn leyfir og við náðum ekki upp okkar besta leik í dag. Ég held að við getum allir verið sammála um það. Þeir unnu þetta kannski verðskuldað bara,“ sagði Sturla Ásgeirsson eftir leikinn. Sturla lék í nokkrar mínútur í dag en hann segir að strákarnir séu staðráðnir í að tryggja sér bronsið á morgun.
„Í fyrri hálfleik vorum við vel inni í leiknum og hefðum kannski getað verið í betri stöðu í hálfleiknum. En svona spilaðist þetta bara. Það gerðist eitthvað í seinni hálfleik og þeir sigldu bara eiginlega yfir okkur.“
„Við gerum svolítið af mistökum, veljum röng færi til að skjóta úr og reyndum að troða boltanum inn á línuna þegar við áttum ekki að vera að því. Við gerðum marga tæknifeila og það gerði þeim auðvelt fyrir að skora úr hraðaupphlaupum. Við lentum í basli með það.“
En þetta er ekkert búið ennþá og það er ennþá brons í boði. Við ætlum að sjálfsögðu að taka það, ekkert annað kemur til greina.“
| Dagst. | Leikur | Úrslit |
|---|---|---|
| 16.01 | Ísland - Króatía | 29 - 31 |
| 18.01 | Ísland - Noregur | 34 - 32 |
| 20.01 | Ísland - Slóvenía | 32 - 34 |
| 22.01 | Ísland - Ungverjaland | 27- 21 |
| 24.01 | Ísland - Spánn | 26 - 31 |
| 26.01 | Ísland - Frakkland |