Aron Pálmarsson var maður leiksins gegn Frökkunum. Þessi frábæri leikmaður sýndi glæsilega takta en hann var hundfúll eins og aðrir eftir leikinn. „Það skipti engu máli hvernig ég spilaði. Ég hefði frekar viljað sitja á bekknum allan leikinn og fara áfram,“ sagði Aron. Hann segir þó að nú sé komið nýtt markið, bronsverðlaun.
„Þetta er bara ömurlegt. Þessi byrjun okkar í seinni hálfleik gerði þeim kleift að kaffæra okkur og þar sýndu þeir af hverju þeir eru heims- og ólympíumeistarar.“
„Á þessum fyrstu tíu mínútum í seinni hálfleik ná þeir upp forskoti og þeir voru að spila vel. Það voru lausnir í sókninni hjá okkur gegn vörninni þeirra en í seinni hálfleik komust þeir bara alltaf í gegn. Það er seigla í þeim.“
Hvað ertu lengi að gíra þig upp í leik um verðlaun á morgun?
„Ég veit ekki alveg. Ég gef þessu kvöldið en svo er ég góður. Ég ætla heim með medalíu. Þetta er alveg ömurlegt en ég er bara nítján ára og það er skrýtið að segja þetta núna að maður sé ósáttur að spila um bronsið á Evrópumótinu. En þannig er það bara. Það er enn brons í boði og Ísland hefur aldrei fengið brons. Það er nýtt markmið hjá okkur núna,“ sagði Aron.
| Dagst. | Leikur | Úrslit |
|---|---|---|
| 16.01 | Ísland - Króatía | 29 - 31 |
| 18.01 | Ísland - Noregur | 34 - 32 |
| 20.01 | Ísland - Slóvenía | 32 - 34 |
| 22.01 | Ísland - Ungverjaland | 27- 21 |
| 24.01 | Ísland - Spánn | 26 - 31 |
| 26.01 | Ísland - Frakkland |