30.01.2010 / 20:40

Björgvin Páll: Við viljum allir koma heim með medalíu

Björgvin Páll: Við viljum allir koma heim með medalíu

Björgvin Páll Gústavsson átti fínan leik í íslenska markinu og sérstaklega í fyrri hálfleik þegar hann varði frábærlega. Björgvin segir að strákana hungri í medalíu hvernig sem hún er á litinn og karakterinn í strákunum geri það að verkum að þeir geta vel rifið sig upp og hirt bronsið á morgun.

„Mér líður illa. Þetta er svekkjandi þegar á heildina er litið. Þeir eiga nánast gallalausan leik og við gerum tæknifeila í tíu til tólf mínútur í seinni hálfleik sem verða okkur að falli. Gegn svona góðu liði eins og Frökkunum geturðu ekki leyft þér það. Þeir refsa bara með hraðaupphlaupi og þeir skilja okkur eftir þarna í seinni hálfleiknum. Við missum einbeitinguna sóknarlega og náum ekki að bakka nógu hratt. Það er dauðadómur gegn svona sterku liði.“

Hvernig leið þér sjálfum í leiknum?
„Það gekk vel í fyrri hálfleik. Ég var mjög sáttur og þá var vörnin flott, þegar við komumst í vörnina. Svo fell ég kannski aðeins niður í seinni hálfleiknum. Þá komu mörg hraðaupphlaup í röð og þá er erfitt að halda stíganda í þessu. En ég vil auðvitað alltaf gera betur en ég geri. Ef ég hefði tekið sjö eða átta bolta í viðbót hefðum við kannski verið inni í þessu."

„En við mætum kannski bara sterkara liði í dag. Við þurfum að eiga 100% gallalausan leik til að vinna Frakkana og þegar þeir spila sinn leik og við erum á hælunum í X tíma þá er þetta bara erfitt.“

Hvernig verður að gíra sig upp fyrir morgundaginn?
„Það verður erfitt, við eyðum næstu tveimur tímum í að fara í sturtu, borða og skoða leikinn en við þurfum að gera okkur grein fyrir því að við erum að fara í stórleik á morgun. Við erum að fara að spila til verðlauna á öðru stórmótinu á tveimur árum og við vitum hversu stórt það er. „

„Við viljum allir koma með medalíu heim, hvernig sem hún er á litinn.“

„Það eru stór vonbrigði að tapa leiknum en við höfum spilað vel á mótinu en mættum bara ofjörlum okkar í dag. En við gírum okkur bara í gang og við erum þannig karakterar að við getum það vel,“ sagði Björgvin.

Facebook Icelandair

Samskiptamiðlar

Næstu leikir og úrslit

Dagst.LeikurÚrslit
16.01 Ísland - Króatía 29 - 31
18.01  Ísland - Noregur 34 - 32
20.01   Ísland - Slóvenía 32 - 34
   22.01          Ísland - Ungverjaland  27- 21
   24.01          Ísland - Spánn  26 - 31
   26.01          Ísland - Frakkland