Ísland hirti bronsið í dag. Strákarnir okkar börðust fyrir því. Heldur betur. Þessu ævintýralega móti er lokið með besta árangri Íslands á Evrópumóti. Strákarnir gerðu þetta fyrir þjóðina sem hefur stutt svo vel við bakið á þeim. Gleðin í leikslok var ólýsanlega skemmtileg. Hér er umsögn um leikinn, viðtöl eru á leiðinni við bronsverðlaunahafana.
Fyrri hálfleikurinn var alveg með ólíkindum. Hann byrjaði reyndar hægt og eftir fimm mínútur var staðan 0-1 fyrir Pólland. En íslenska vörnin í fyrri hálfleik, og sérstaklega fyrstu fimmtán, var með ævintýralegum ólíkindum. Hún hefur sjaldan verið jafn góð. Pólverjar vissu ekkert hvað þeir áttu að gera, ekkert.
Alexander fór vel út á móti Bielecki, þeirra aðal manni, og hann gat ekkert. Lamdi strákana reyndar tvisvar í andlitið á fyrstu mínútunum og fékk tvær brottvísanir frá góðum dómurum leiksins. Fyrsta mark Pólverja úr opnum leik kom eftir tæpar níu mínútur.
Öll vörnin var frábær og Björgvin flottur fyrir aftan hana. Alexander stal boltum, fékk ruðninga á Pólverja og lokaði vel á skyttuna vinstra megin. Ingimundur og Sverre lokuðu öllu og Vignir kom líka frábær inn. Ingimundur skoraði auk þess tvö mörk úr hraðaupphlaupum.
Og talandi um þau þá sáust sjö slík í fyrri hálfleik af átján mörkum. Það gekk líka allt upp, strákarnir voru nokkrum sinnum heppnir þegar boltinn datt til þeirra en það þarf að vera með í þessu. Ólafur Stefánsson var greinilega staðráðinn í að bæta fyrir leik sinn í gær sem hann lýsti sem mjög slökum. Hann skaut og skaut strákurinn en var óheppinn.
Stemningin í liðinu var frábær sem aldrei fyrr. Eftir fimmtán mínútur hafði Ísland skoraði átta mörk en Pólland fjögur. Helmingur íslensku markanna var úr hraðaupphlaupum og þegar Aron skoraði tólfta markið og kom okkur í 12-6 eftir nítján mínútur tóku Pólverjar leikhlé.
Það var lýsandi fyrir baráttu strákanna að þegar boltinn var laus á vellinum hentu tveir leikmenn sér á boltann til að tryggja að Ísland næði honum. Aðdáunarvert. Guðjón Valur skoraði sjö mörk í fyrri hálfleik en eftir hann leiddum við með átta mörkum 18-10. Frábær leikur hjá liðinu.
Ég verð svo að bæta við kveðju sem var vinsæl á Fésbókinni fyrir leikinn: „Faðir Guðmundur, þú sem ert á bekknum tilkomi þitt lið, verði þinn vilji svo í kolli sem á velli, gef oss í dag vort daglegt brons, svo fyrirgef oss vorum skuldum því að þitt er liðið, sigurinn og Bronsið að eilífu...AMEN!!!!!!!!!!!!!!!!!“
Pólverjar komu sterkir inn í seinni hálfleikinn og voru tíu mínútur að minnka muninn í þrjú mörk. Þá tók Guðmundur leikhlé en á þessum kafla gekk ekkert upp hjá strákunum. Eftir tíu mínútur af seinni hálfleik var staðan 20-17 fyrir Ísland en ekkert gekk að skora.
Pólverjar héldu áfram að minnka muninn. En þá skoraði loksins Ísland, fyrsta markið í rúmar átta mínútur. Á þeim tíma skoruðu Pólverjar sjö mörk. Eftir fimmtán mínútur af síðari hálfleik var munurinn aðeins þrjú mörk, 21-18. Strákarnir náðu aftur upp fimm marka forskoti þegar Hreiðar varði tvö skot þegar tæpar þrettán mínútur voru eftir.
En aftur minnkuðu Pólverjar muninn í þrjú mörk þegar tíu mínútur voru eftir. Spennan mögnuð.
Sjö mínútur eftir, Hreiðar ver vel og Ísland þremur mörkum yfir og í sókn. Enn ver markmaður þeirra vel. Þá breytti Ísland um vörn en ólverjar minnkuðu muninn í tvö mörk og tæpar sex mínútur eftir. Þá skoraði Aron mikilvægt mark og þegar fimm mínútur voru eftir var Ísland þremur mörkum yfir.
Pólverjar skoruðu þá tvö mörk í röð á stuttum tíma og minnkuðu muninn í eitt mark þegar fjórar mínútur voru eftir. Óli Stef skorar og Pólland missir bolta. Þrjár og hálf eftir. Robbi skorar og við fögnuðum ógurlega. Þrjár eftir, þriggja marka munur.
Pólland skorar og markmaður þeirra ver. Tvær eftir og þeir tapa boltanum, staðan 26-28.
Ísland missir boltann, Pólverjar í hraðaupphlaup, Alex stoppar það á ÓTRÚLEGAN hátt með því að skutla sér svona þrjá metra og slá boltann frá þeim. Ein og hálf eftir. Spennan er fáránleg og ég á erfitt með að horfa eins og aðrir. Pólverjar með boltann, Hreiðar ver en þeir halda boltanum. Hreiðar ver aftur frábærlega! Ein mínúta eftir.
Leikurinn endaði svo með marki frá Guðjóni úr horninu. Glæsilegur sigur staðreynd.
Ég veit ekki hvert ég ætlaði. Ég gjörsamlega trylltist ásamt öðrum blaðamönnum mér við hlið. Það var yndislegt að sjá strákana fagna sigrinum. Frábært, algjörlega frábært.
Ísland bronsaði sig í gagn á EM 2010.
| Dagst. | Leikur | Úrslit |
|---|---|---|
| 16.01 | Ísland - Króatía | 29 - 31 |
| 18.01 | Ísland - Noregur | 34 - 32 |
| 20.01 | Ísland - Slóvenía | 32 - 34 |
| 22.01 | Ísland - Ungverjaland | 27- 21 |
| 24.01 | Ísland - Spánn | 26 - 31 |
| 26.01 | Ísland - Frakkland |