31.01.2010 / 17:08

Arnór Atla: Tileinkum Gunna Magg og fjölskyldu bronsið

Arnór Atla: Tileinkum Gunna Magg og fjölskyldu bronsið

Arnór Atlason var meðal bestu manna Íslands á mótinu. Arnór lýsir tilfinningum sínum og segir frá því hvernig liðið fékk auka kraft fyrir leikinn.

"Mér líður ótrúlega vel. Nú erum við með medalíu annað stórmótið í röð. Við höfum aldrei fengið medalíu á Evrópu- eða Heimsmeistaramóti svo þetta er risastökk sem ég er að taka. Við erum að taka þetta skref með tveimur stórmótum sem hefur ekki tekist áður."

"Við fundum extra kraft hjá okkur í dag. Við ákváðum að tileinka Gunna Magg, systur hans og allri fjölskyldunni þennan leik og þessa medalíu. Gunni hefur hjálpað okkur ótrúlega mikið."

Hvernig var að nálgast þennan leik eftir vonbrigðin gegn Frökkum?

"Ekkert mál. Við mætum ómennskum Frökkum, þeir eru með frábært handboltalið. Kannski af því við töpuðum svona stórt var minna svekkelsi. Það var allavega ekkert mál, medalía í húfi og allt. Hana vildum við."

"Þetta var geggjað."

Facebook Icelandair

Samskiptamiðlar

Næstu leikir og úrslit

Dagst.LeikurÚrslit
16.01 Ísland - Króatía 29 - 31
18.01  Ísland - Noregur 34 - 32
20.01   Ísland - Slóvenía 32 - 34
   22.01          Ísland - Ungverjaland  27- 21
   24.01          Ísland - Spánn  26 - 31
   26.01          Ísland - Frakkland