„Ég ákvað að raka vonbrigðin í burtu eftir tapið og byrja daginn sem nýr maður,“ sagði Róbert Gunnarsson um skeggleysið en hann hafði skartað afar myndarlegu skeggi á mótinu til þessa. Róbert var frábær í leiknum eins og öllu mótinu. Algjörlega frábær. Robbi var á leiðinni í lyfjapróf en var annars hress.
Hvernig líður þér annars?
„Mér líður stórkostlega. Ég er reyndar að fara í lyfjapróf, það er mjög leiðinlegt. En ég sagði það fyrir leikinn að mér væri alveg sama þó að ég væri tekinn í lyfjapróf ef við vinnum leikinn,“ sagði Róbert skælbrosandi.“
Segðu mér frá þessum ótrúlega fyrri hálfleik.
„Hann var auðvitað bara stórkostlegur. Við vorum búnir að stúdera þá alveg í gegn. Gummi var búinn að leggja þetta vel fyrir okkur eins og alltaf. Við stoppuðum bara nánast allar aðgerðir þeirra og Bjöggi stóð bara vel í markinu."
"Við mættum dýróðir til leiks. Við vorum slegnir niður í gær en við stóðum upp í dag og sýndum karakter. Við byrjum seinni hálfleik ekki endilega illa en við klikkum aðeins. Það skiptir engu máli núna af því við unnum. Svo kom Hreiddi inn á og stóð sig stórkostlega. Það er geggjað að vera kominn með tvo frábæra markmenn.“
Ertu ekki ánægður með mótið hjá sjálfum þér?
„Jújú, ég er bara ánægður með að ná í medalíu. En auðvitað er maður ánægður þegar maður stendur sig vel, það væri hræsni að segja annað. En núna er maður búinn að vera í þessu í nokkur ár og þá er mikilvægara fyrir manni að liðið vinni. Ég myndi fagna þessu jafn mikið þó að ég hefði ekki skorað þessi mörk.“
Hvað segir þessi árangur um liðið og íslenskan handbolta?
„Við sýndum úr hverju við erum gerðir. Við ætluðum að skila góðu móti og við stóðum við það. Ég er rosalega stoltur af því að vera hlutur af þessu liði, að vera einn hlekkur af þessari keðju. Það er bara stórkostlegt,“ sagði nýrakaður og myndarlegur Róbert.
| Dagst. | Leikur | Úrslit |
|---|---|---|
| 16.01 | Ísland - Króatía | 29 - 31 |
| 18.01 | Ísland - Noregur | 34 - 32 |
| 20.01 | Ísland - Slóvenía | 32 - 34 |
| 22.01 | Ísland - Ungverjaland | 27- 21 |
| 24.01 | Ísland - Spánn | 26 - 31 |
| 26.01 | Ísland - Frakkland |