31.01.2010 / 18:07

Hreiðar: Þetta var ruglfínt

Hreiðar: Þetta var ruglfínt

Margir leikmenn léku vel í leiknum gegn Pólverjum. Strákarnir eiga allir heiður skilinn fyrir frábært mót. Allir. Sama hversu mikið þeir spiluðu. En markvarsla Hreiðars var eiginlega til þess að þetta var hægt. Pólverjar voru með sjálfstraustið í botni og gátu jafnað leikinn þegar Hreiðar var mættur og átti öll svör við þeim. Hreiðar átti frábæran leik. Hann fann líka upp á nýju orði, „ruglfínt.“

Hvernig var að koma þarna inn og taka þessa átta bolta og klára þetta bara fyrir okkur?
"Það var eðall, ekkert annað. Ruglfínt, er það ekki fínt orð? Þetta var ruglfínt."

Hvað gerðist fyrir leikinn? Þið komuð alveg klikkaðir til leiks.
"Já, vörnin var eins og ég veit ekki hvað. Þá komu hraðaupphlaupin líka. Gummi sagði fyrir leikinn að við værum að fara í stríð. Við ætluðum að koma út sem sigurvegarar úr þessu stríði. Það er ágætt að íslenski herinn sé bara íslenska handboltalandsliðið. Við ætlum að vinna orrustur inni á vellinum en ekki einhversstaðar annarsstaðar. Þannig fórum við inn í þetta. Það var ótrúlegt að horfa upp á þetta. Menn voru jarðaðir hérna hægri vinstri, einhver 120 kílóa buff, og þeir áttu engin svör."

Og þið hatið heldur ekki að gera þetta spennandi fyrir áhorfendur.
"Rétt. Þetta var fáránlegt. Við náum aldrei að klára leikina, en við vinnum allavega flesta þessa jöfnu leiki. Þetta eru örugglega eftirminnilegir leikir fyrir áhorfendur,“ sagði Hreiðar og glotti.

Facebook Icelandair

Samskiptamiðlar

Næstu leikir og úrslit

Dagst.LeikurÚrslit
16.01 Ísland - Króatía 29 - 31
18.01  Ísland - Noregur 34 - 32
20.01   Ísland - Slóvenía 32 - 34
   22.01          Ísland - Ungverjaland  27- 21
   24.01          Ísland - Spánn  26 - 31
   26.01          Ísland - Frakkland