31.01.2010 / 18:05

Forseti Íslands: Einstakt afrek í íþróttasögu Íslands

Forseti Íslands: Einstakt afrek í íþróttasögu Íslands

Forsetahjón Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaief voru á leiknum egn Pólverjum í dag. Þau virtust skemmta sér konunglega en ég ræddi aðeins við Ólaf eftir leikinn. Hann var brosmildur eins og aðrir Íslendingar en þau sáu Ísland líka hampa silfrinu í Peking.

„Við komum seint í gærkvöldi eftir langt ferðalag frá Indlandi en við vildum tvímælalaust koma og sjá leikinn. Það er gaman fyrir okkur Dorrit að hafa bæði verið í Kína fyrir einu og hálfu ári á þessum sögulegu stundum og verða vitni að því þegar strákarnir okkar sýndu og sönnuðu að þeir eru með þeim bestu í heiminum. Það er gaman að standa á tveimur árum á verðlaunapalli á tveimur stórmótum í röð og þetta er einstakt afrek í íþróttasögu Íslands.“

Eruð þið Dorrit lukkutröll íslenska liðsins jafnvel?
„Allavega Dorrit!“

Hvernig fannst þér leikurinn annars?
„Þetta var sérkennilegur leikur. Fyrri hálfleikurinn var svo ótrúlegur að maður áttaði sig varla á því. Svo komu tímabil í seinni hálfleik þar sem maður velti fyrir sér hvort að enn á ný ætti eftir að verastórslys í seinni hálfleik. En strákarnir sýndu úthald og börðust eins og ljón. Þeir voru staðráðnir í því að vera á verðlaunapalli, eins og í Kína, þegar þeir sögðu engum frá því.“

„En þetta eru líka mikil skilaboð til samfélagsins á Íslandi, til bæjarfélaganna, til foreldranna og einkum til krakkanna sem eru að byrja að æfa. Að það er hægt með aga og úthaldi að vera með þeim bestu í veröldinni,“ sagði Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson um strákana okkar.

Facebook Icelandair

Samskiptamiðlar

Næstu leikir og úrslit

Dagst.LeikurÚrslit
16.01 Ísland - Króatía 29 - 31
18.01  Ísland - Noregur 34 - 32
20.01   Ísland - Slóvenía 32 - 34
   22.01          Ísland - Ungverjaland  27- 21
   24.01          Ísland - Spánn  26 - 31
   26.01          Ísland - Frakkland