Alexander Petersson átti tilþrif mótsins. Hvernig í ósköpunum fór hann að þessu? Ein og hálf mínúta eftir, Pólverjar í hraðaupphlaupi og geta minnkað muninn í eitt mark. Alexander stekkur þá á boltann framhjá Pólverja og stoppar sóknina. Ótrúlegt. Sjáðu myndband af atvikinu hér.
"Síðan í seinni hálfleik verðum við vitni að einhverri stórkostlegustu varnartilburðum sem ég hef séð í handbolta, nokkurn tíman, fyrr og síðar. Menn skulu skoða þetta hjá Alexi. Þetta verður lengi í minnum haft," sagði Guðmundur landsliðsþjálfari um tilþrifin.
„Svo held ég að það verði að sýna varnarmúvið hjá Lexa næstu daga í sjónvarpinu. Súperman-múvið í hraðaupphlaupinu. Þetta var ekki eðlilegt. Ég hef aldrei séð svona á ævinni. Þetta er múv ársins. Ég veit ekki hvað Eiður Smári eða einhver þarf að gera til að þetta sé ekki múv ársins," sagði Ólafur Stefánsson.
Báðir hafa séð ýmislegt á vellinum sem segir margt um tilþrifin.
Myndbandið er hérna.
| Dagst. | Leikur | Úrslit |
|---|---|---|
| 16.01 | Ísland - Króatía | 29 - 31 |
| 18.01 | Ísland - Noregur | 34 - 32 |
| 20.01 | Ísland - Slóvenía | 32 - 34 |
| 22.01 | Ísland - Ungverjaland | 27- 21 |
| 24.01 | Ísland - Spánn | 26 - 31 |
| 26.01 | Ísland - Frakkland |