31.08.2010 / 11:23

Ingvar Kale: Ef við berjumst fyrir hvorn annan er allt hægt

Að sjálfsögðu er þetta algjör draumur, þetta er það sem að allir knattspyrnumenn hljóta að stefna að þannig að ég er gríðarlega ánægður með þetta,“ segir markvörðurinn Ingvar Kale sem var á dögunum kallaður upp í íslenska landsliðshópinn.

Ingvar er eini nýliðinn í hópnum sem mætir Noregi og Danmörku. Hann býst við því að Gunnleifur Gunnleifsson verði herbergisfélagi sinn í Danmörku. „Margir segja að markmenn verði að vera saman í herbergi af því að þeir eru álíka grillaðir,“ segir Ingvar.
Hann er nokkuð bjartsýnn fyrir komandi leiki. „Mér lýst bara vel á verkefnið, ef að við höldum skipulagi og berjumst fyrir hvorn annan er allt hægt.


Ingvar hefur átt mjög gott tímabil þar sem hans menn í Breiðabliki eru í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. „Þetta er ákveðin gulrót fyrir fínt tímabil hjá mér og öllu liðinu,“ segir Ingvar.
En hver er ástæðan fyrir þessu góða gengi Blika í sumar? „Ég mundi segja að trúin á að við séum gott lið og viljinn til þess að vera þarna uppi við toppinn sé meginástæðan. Við settum okkur háleit markmið og þau eru ennþá góð og gild. Það eru allir "winnerar" í liðinu,“ segir Ingvar Kale.

Facebook Icelandair

Samskiptamiðlar

Næstu leikir og úrslit

Dagst.LeikurÚrslit
16.01 Ísland - Króatía 29 - 31
18.01  Ísland - Noregur 34 - 32
20.01   Ísland - Slóvenía 32 - 34
   22.01          Ísland - Ungverjaland  27- 21
   24.01          Ísland - Spánn  26 - 31
   26.01          Ísland - Frakkland