Í landsliðshópi Íslands fyrir leikinn gegn Noregi eru alls fimm leikmenn sem leika í norsku úrvalsdeildinni. Það eru Árni Gautur Arason, Kristján Örn Sigurðsson, Indriði Sigurðsson, Bjarni Ólafur Eiríksson og Veigar Páll Gunnarsson.
Árni Gautur ver mark Odd Grenland sem situr í tíunda sæti deildarinnar þegar 22 umferðir eru búnar en það eru 16 lið sem skipa deildina.
Einu stigi og einu sæti ofar er svo Stabæk en þar eru þeir Bjarni og Veigar Páll í lykilhlutverkum á sitthvorum enda vallarins. Kristján Örn er í liði Hönefoss sem er í þrettánda sætinu en þó nokkuð frá fallsætum.
Sá Íslendingur sem hefur montréttinn í Noregi er síðan Indriði en hans menn í Viking sitja í fimmta sæti deildarinnar.
Þess má svo geta að þrír leikmenn í íslenska hópnum leika í Danmörku. Sölvi Geir Ottesen og félagar í FC Kaupmannahöfn tróna þar á toppnum eftir sjö umferðir en í fimmta sæti eru Ólafur Ingi Skúlason og félagar í SönderjyskE. Rúrik Gíslason og hans menn í OB eru í fjórða.
| Dagst. | Leikur | Úrslit |
|---|---|---|
| 16.01 | Ísland - Króatía | 29 - 31 |
| 18.01 | Ísland - Noregur | 34 - 32 |
| 20.01 | Ísland - Slóvenía | 32 - 34 |
| 22.01 | Ísland - Ungverjaland | 27- 21 |
| 24.01 | Ísland - Spánn | 26 - 31 |
| 26.01 | Ísland - Frakkland |