31.08.2010 / 11:27

Sölvi gulls ígildi

Sölvi Geir Ottesen hefur verið funheitur með FC Kaupmannahöfn í Danmörku. Ekki hefur hann bara verið að standa vaktina vel í vörninni heldur hefur hann einnig skorað mikilvæg mörk á hinum enda vallarins.


Hann skoraði líklega sitt mikilvægasta mark á ferlinum þegar hann skoraði með skalla eftir innkast og tryggði sínu liði sigur á Rosenborg í forkeppni Meistaradeildar í síðustu viku. Gjaldkeri danska liðsins hefur væntanlega hoppað hæð sína af kæti því þetta mark tryggir félaginu ansi væna summu vægast sagt.


Á dögunum var síðan dregið í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en Sölvi Geir verður fimmti Íslendingurinn til að spila þar. Stórlið Barcelona er í riðli með FC Kaupmannahöfn en þar eru líka Panathinaikos og Rubin Kazan.


Sölvi er fullur sjálfstrausts þessa dagana eins og vera ber og spennandi að sjá hann í komandi landsleikjum gegn Noregi og Danmörku.

Facebook Icelandair

Samskiptamiðlar

Næstu leikir og úrslit

Dagst.LeikurÚrslit
16.01 Ísland - Króatía 29 - 31
18.01  Ísland - Noregur 34 - 32
20.01   Ísland - Slóvenía 32 - 34
   22.01          Ísland - Ungverjaland  27- 21
   24.01          Ísland - Spánn  26 - 31
   26.01          Ísland - Frakkland