Af vefsíðu KSÍ:
FIFA og UEFA standa nú fyrir sérstökum háttvísidögum í 14. sinn, en þeir voru fyrst haldnir árið 1997, og er þetta framtak stutt sérstaklega af Sepp Blatter, forseta FIFA og Michel Platini, forseta UEFA. Að þessu sinni urðu dagarnir 3. til 7. september fyrir valinu, en á því tímabili eru einmitt tveir landsleikjadagar. Háttvísidagarnir eru haldnir hátíðlegir á ýmsan hátt víðs vegar um heiminn, allt frá grasrótarknattspyrnu og til A-landsleikja.
Minnt verður á háttvísidaga FIFA og UEFA hér á Íslandi í tengslum við leik A-landsliðs karla gegn Norðmönnum 3. september, sem er fyrsti leikur íslenska liðsins í undankeppni EM 2012, á Laugardalsvelli.
Knattspyrnusamband Íslands hvetur alla - leikmenn, þjálfara, dómara, stuðningsmenn og alla aðra sem tengjast knattspyrnu með einum eða öðrum hætti – til að sýna háttvísi og virðingu, jafnt á vellinum sem utan hans. KSÍ minnir á að hver einasti maður má aldrei missa sjónar á því að besta leiðin til að leika knattspyrnu er að sýna háttvísi, heiðarleika og virðingu.
10 gullnar reglur FIFA um háttvísi
1.Leikið heiðarlega.
2.Leikið til sigurs, en takið tapi með reisn.
3.Hlítið knattspyrnulögunum.
4.Sýnið mótherjum, samherjum, dómurum, forráðamönnum og stuðningsmönnum virðingu.
5.Hafið heildarhagsmuni knattspyrnunnar í huga.
6.Heiðrið þau sem verja gott orðspor knattspyrnunnar.
7.Hafnið spillingu, ólöglegum lyfjum, eiturlyfjum, kynþáttahatri, ofbeldi, veðmálastarfsemi og öðrum hættum sem kunna að steðja að íþróttinni okkar.
8.Styðjið aðra í að standast þrýsting spillingar.
9.Afneitið þeim sem reyna að lítillækka íþróttina okkar.
10.Notið knattspyrnu til að bæta heiminn.
| Dagst. | Leikur | Úrslit |
|---|---|---|
| 16.01 | Ísland - Króatía | 29 - 31 |
| 18.01 | Ísland - Noregur | 34 - 32 |
| 20.01 | Ísland - Slóvenía | 32 - 34 |
| 22.01 | Ísland - Ungverjaland | 27- 21 |
| 24.01 | Ísland - Spánn | 26 - 31 |
| 26.01 | Ísland - Frakkland |