Vefsíða Morgunblaðsins greinir frá því að Brynjar Björn Gunnarsson verður ekki með í landsleiknum gegn Noregi á föstudagskvöld vegna meiðsla.
Brynjar meiddist á læri í leik með Reading gegn Leicester í ensku 1. deildinni um síðustu helgi og hefur ekki náð að jafna sig á þeim meiðslum.
Þessi öflugi miðjumaður er reynslumesti landsliðsmaðurinn sem valinn var í hópinn fyrir þessi verkefni gegn Noregi og Danmörku. Brynjar hefur leikið 74 A-landsleiki fyrir Íslands hönd.
| Dagst. | Leikur | Úrslit |
|---|---|---|
| 16.01 | Ísland - Króatía | 29 - 31 |
| 18.01 | Ísland - Noregur | 34 - 32 |
| 20.01 | Ísland - Slóvenía | 32 - 34 |
| 22.01 | Ísland - Ungverjaland | 27- 21 |
| 24.01 | Ísland - Spánn | 26 - 31 |
| 26.01 | Ísland - Frakkland |