02.09.2010 / 00:05

Logi og Björgvin: Allir í Þýskalandi þekkja Sigurvinsson

Logi og Björgvin: Allir í Þýskalandi þekkja Sigurvinsson

Gelsérfræðingarnir og handboltastjörnurnar Logi Geirsson og Björgvin Páll Gústavsson segja Ásgeir Sigurvinsson besta fótboltamann Íslands frá upphafi. Þeir hafa kynnst því í Þýskalandi hve stór stjarna Ásgeir er þar í landi.

„Það er ekki til mannsbarn í Þýskalandi sem þekkir ekki nafnið Siguvinsson," segir Logi og Björgvin tekur í sama streng: „Ég hóf minn atvinnumannaferil í liði í grennd við Stuttgart og heyrði ég nafn hans alltof oft nefnt þegar ég sagðist koma frá Íslandi."

Björgvin getur ekki skellt sér á Laugardalsvöllinn á föstudagskvöld þegar Ísland mætir Noregi í fyrsta leik sínum í undankeppni EM. „Nei því miður kemst ég ekki á völlinn vegna búsetu minnar erlendis og læt stuðning í gegnum sjónvarpið nægja," segir Björgvin.

Hann segist hrikalega hrifinn af ungu kynslóðinni í íslenska landsliðinu. „Væri til í sjá fleiri unga menn þarna inni eins og Steinþór Freyr. Verð samt að setja Gunnleif í fyrsta sætið hjá mér sem minn uppáhaldsleikmann. Sakna þess reyndar að sjá mesta töffara knattspyrnusögunnar inná vellinum hann Hemma Hreiðars en þó að hann sé harður þá gerir hann ekki mikið með slitna hásin," segir Björgvin.

En þeir félagar eru með skilaboð til leikmanna íslenska liðsins: „Já, Trúa! Og svo bara til þín Óli: Notaðu Gylfa og yngjum þetta aðeins upp," segir Logi. Skilaboð Björgvins eru á þessa leið: „Ég splæsi kók og pulsu á þann sem að sparkar Ronaldo fyrst niður í leiknum á móti Portúgal. Geri einnig ráð fyrir því að þið séuð allir að nota Silver... Annars getið þið gleymt því að ná í stig í þessari undankeppni!"

Facebook Icelandair

Samskiptamiðlar

Næstu leikir og úrslit

Dagst.LeikurÚrslit
16.01 Ísland - Króatía 29 - 31
18.01  Ísland - Noregur 34 - 32
20.01   Ísland - Slóvenía 32 - 34
   22.01          Ísland - Ungverjaland  27- 21
   24.01          Ísland - Spánn  26 - 31
   26.01          Ísland - Frakkland