Keflavík kemur mikið við sögu hjá íslenska landsliðinu í undirbúningi sínum fyrir fyrstu leikina í undankeppni EM. Landsliðshópurinn kom saman á mánudaginn og hefur verið í Keflavík síðan, gist þar og æft við flottar aðstæður á heimavelli Keflvíkinga en eins og frægt er var nýtt gras lagt á þann völl í sumar.
Í dag, fimmtudag, kemur hópurinn svo til Reykjavíkur og æfir á Laugardalsvellinum. Hann gistir svo í Reykjavík næstu nótt en á föstudaginn er komið að stóru stundinni þegar leikið verður gegn Noregi.
En það er skammt stórra högga á milli og strax á laugardag verður haldið til Keflavíkur aftur, að þessu sinni á Keflavíkurflugvöll. Haldið verður til Kaupmannahafnar enda leikið gegn Danmörku strax næsta þriðjudag.
Mynd: Þjálfarar landsliðsins, Ólafur Jóhannesson og Pétur Pétursson. Heimasíða KSÍ.
| Dagst. | Leikur | Úrslit |
|---|---|---|
| 16.01 | Ísland - Króatía | 29 - 31 |
| 18.01 | Ísland - Noregur | 34 - 32 |
| 20.01 | Ísland - Slóvenía | 32 - 34 |
| 22.01 | Ísland - Ungverjaland | 27- 21 |
| 24.01 | Ísland - Spánn | 26 - 31 |
| 26.01 | Ísland - Frakkland |