Fjölmiðlamaðurinn ástsæli Hermann Gunnarsson, best þekktur sem Hemmi Gunn, verður í stúkunni á Laugardalsvelli á föstudag þegar íslenska landsliðið mætir því norska í fyrsta leik sínum í undankeppni Evrópumótsins.
„Ég reyni auðvitað að fara á alla landsleiki og leikurinn á föstudag verður engin undantekning," segir Hemmi en hver er hans uppáhalds leikmaður í liðinu?
„Það er erfitt að tala um uppáhalds leikmann í þessu unga liði, en vissulega var það Eiður meðan hann var í sínu besta formi. Núna beinist athygli mín mest að Gylfa Þór Sigurðssyni, sem ég reyndar skil ekki af hverju hefur ekki átt fast sæti í liðinu í undanförnum leikjum. Svo hafa Kolbeinn Sigþórsson og Rúrik Gísla sýnt að þar eru framtíðarmenn á ferðinni."
En hver er besti fótboltamaður sem Ísland hefur átt? „Það er alltaf erfitt og afstætt að bera saman leikmenn af mismunandi kynslóðum, en ég tel Ásgeir Sigurvinsson þann besta sem við höfum átt, enda var hann kosinn það fyrir tveimur árum af sparkspekingum," svarar Hemmi.
„Skilaboð mín til liðsins er að hafa gaman að því að spila fótbolta og bera mikið stollt í brjósti að geta barist fyrir þjóð sína. Stórsigur okkar á 21 árs Evrópumeisturum Þjóðverja gæti gefið okkur það fordæmi sem við þurfum í leik gegn þeim norsku, sem eru ekkert betri en við!" sagði Hemmi Gunn að lokum.
Mynd: Fótbolti.net
| Dagst. | Leikur | Úrslit |
|---|---|---|
| 16.01 | Ísland - Króatía | 29 - 31 |
| 18.01 | Ísland - Noregur | 34 - 32 |
| 20.01 | Ísland - Slóvenía | 32 - 34 |
| 22.01 | Ísland - Ungverjaland | 27- 21 |
| 24.01 | Ísland - Spánn | 26 - 31 |
| 26.01 | Ísland - Frakkland |