02.09.2010 / 18:29

Grétar Rafn: Verð klár þegar flautað verður

Grétar Rafn: Verð klár þegar flautað verður

„Ég er alveg heill og klár í slaginn," sagði Grétar Rafn Steinsson, leikmaður íslenska landsliðsins og Bolton á Englandi, á blaðamannafundi Íslands sem haldinn var á Laugardalsvelli í dag.

Grétar hefur lítið tekið þátt í æfingum fyrir leikinn en verður þó með á morgun.

„Það var tekið því rólega á æfingum fyrir leikinn enda hefur verið mikil keyrsla hjá mér síðustu vikur. Það var erfiður leikur á sunndaginn sem tók í svo það hafa verið rólegheit. Það sem skiptir máli er að vera í standi þegar leikur hefst á föstudag, það telur ekkert að vera bestur á æfingunum fyrir leik. Ég verð klár þegar flautað verður," sagði Grétar.

Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur heldur ekki miklar áhyggjur. „Grétar hefur átt í vandræðum með hnéð á sér og við höfum hagað undirbúningi þannig að við séum ekki mikið að þjasnast á honum. Hann hefur átt erfitt með að æfa á fullu og því höfum við farið varlega í sakirnar með hann. Hann verður 100% fit þegar leikurinn hefst," sagði Ólafur.

Facebook Icelandair

Samskiptamiðlar

Næstu leikir og úrslit

Dagst.LeikurÚrslit
16.01 Ísland - Króatía 29 - 31
18.01  Ísland - Noregur 34 - 32
20.01   Ísland - Slóvenía 32 - 34
   22.01          Ísland - Ungverjaland  27- 21
   24.01          Ísland - Spánn  26 - 31
   26.01          Ísland - Frakkland