02.09.2010 / 18:38

Óli Jóh: Okkar lið yngra en oft áður

Óli Jóh: Okkar lið yngra en oft áður

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, segir Ísland eiga ágætis möguleika á að leggja Noreg annað kvöld. Hann hefur enn ekki opinberað byrjunarliðið og ekki heldur hver muni bera fyrirliðabandið í leiknum.

 „Ég tilkynni liðið um hádegið á morgun. Það verða einhverjar breytingar en ég hef trú á því að liðið verði yngra en oft áður. Mönnum verður kannski hent út í djúpu laugina strax. Það tekur menn oft einn dag að læra að synda en flestir þessir strákar haf verið að gera fína hluti með sínum félagsliðum og allir hafa þeir komið við sögu hjá landsliðinu. Það er því ágætis reynsla sem býr í þeim,“ sagði Ólafur á blaðamannafundi í dag.

Norskir fjölmiðlamenn voru mjög forvitnir um að vita ástæðuna fyrir því að Eiður Smári Guðjohnsen væri ekki í leikmannahópi Íslands.

„Það er langt síðan hann hefur spilað og hefur verið í leit að nýju félagi. Það er ástæðan fyrir því að hann var ekki valinn. Hann er okkar besti leikmaður og verður vonandi tilbúinn fyrir næsta hóp. Við söknum Eiðs en aðrir leikmenn eru nægilega sterkir fyrir þetta verkefni,“ svaraði Ólafur.

Brynjar Björn Gunnarsson verður ekki með annað kvöld og óvíst er með þátttöku hans í Danmörku einnig. „Það er mjög tæpt hvort hann verði með í Danmörku. Ég mun taka stöðuna eftir leikinn gegn Noregi og sjá hvernig ástandið á mönnum verður. Ef að það verða 2-3 leikmenn ekki lekhæfir eftir þann leik mun ég skoða það að bæta einhverjum í hópinn. Ef það verður aðeins einn þá er ég ekki viss um hvort ég sæki mann, ég á eftir að vega það og meta,“ sagði Ólafur.

„Rúrik Gíslason hefur verið veikur og kom ekki alveg heill til landsins. Hann æfði ekki með okkur í gær en ætlar að æfa núna. Að öðru leyti er hópurinn fínn og allir 100% heilir.“

„Við komum til að spila sama kerfi og við höfum verið með, 4-5-1. Auðvitað þekkja bæði lið hvort annað mjög vel. Við erum með fullt af mönnum sem eru að spila í Noregi og þekkja norska boltann mjög vel. Ég tel ekki mikið í þeirra leik sem eigi að koma okkur mikið á óvart. Að sama skapi þekkja þeir okkur út og inn, við spiluðum við þá tvo leiki fyrir HM.“

Noregur verður án sóknarmannsins John Carew og segir Ólafur að fjarvera hans veiki þá í föstum leikatriðum sóknarlega.

En hver eru markmið Íslands fyrir þessa undankeppni? „Að sjálfsögðu erum við eins og öll önnur fótboltalið og förum í leiki til að vinna þá. Við setjum okkur frekar markmið fyrir hvern leik. Það verður bara tekinn hver leikur fyrir sig og svo sjáum við hver útkoman verður úr því. Við settum okkur það takmark fyrir þennan leik að vinna hann. Við teljum okkur eiga ágætis möguleika til þess,“ sagði Ólafur.

Facebook Icelandair

Samskiptamiðlar

Næstu leikir og úrslit

Dagst.LeikurÚrslit
16.01 Ísland - Króatía 29 - 31
18.01  Ísland - Noregur 34 - 32
20.01   Ísland - Slóvenía 32 - 34
   22.01          Ísland - Ungverjaland  27- 21
   24.01          Ísland - Spánn  26 - 31
   26.01          Ísland - Frakkland