03.09.2010 / 11:02

Víkingurinn sem verður fyrirliði í kvöld

Víkingurinn sem verður fyrirliði í kvöld

Tilkynnt var í gærkvöldi að Sölvi Geir Ottesen, leikmaður FC Köbenhavn, yrði fyrirliði Íslands í leiknum gegn Norðmönnum. Hermann Hreiðarsson er fyrirliði landsliðsins en hann er meiddur eins og kunnugt er.

Sölvi er fæddur 1984 og er uppalinn hjá Víkingi í Reykjavík. Hann lék með meistaraflokki félagsins frá 2001-2004, fyrstu árin í 1. deildinni en svo eitt tímabili í efstu deild sem þá bar nafnið Landsbankadeildin.

Hann samdi svo við  Djurgården í Svíþjóð en Sigurður Jónsson sem var þjálfari hans hjá Víkingum aðstoðaði hann við þau félagaskipti. Danska liðið SönderjyskE fékk svo áhuga á honum og skrifaði hann undir þriggja ára samning við það.

Þar varð hann strax lykilmaður og fór að vekja áhuga ýmissa stærri liða fyrir frábæra frammistöðu. Það fór svo að hann samdi við FC Köbenhavn fyrir yfirstandandi tímabil en liðið varð meistari í Danmörku á því síðasta.

Hann hefur byrjað frábærlega hjá FC Köbenhavn og skoraði gríðarlega mikilvægt mark gegn Rosenborg í forkeppni Meistaradeildarinnar sem tryggði Kaupmannahafnarliðinu sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Þar verður liðið m.a. í riðli með Barcelona.

Sölvi hefur leikið ellefu leiki fyrir U21 landsliðið og aðra ellefu fyrir A-landsliðið. Hans fyrsti A-landsleikur var vináttulandsleikur gegn Póllandi 2005 þar sem hann var í byrjunarliðinu.

Facebook Icelandair

Samskiptamiðlar

Næstu leikir og úrslit

Dagst.LeikurÚrslit
16.01 Ísland - Króatía 29 - 31
18.01  Ísland - Noregur 34 - 32
20.01   Ísland - Slóvenía 32 - 34
   22.01          Ísland - Ungverjaland  27- 21
   24.01          Ísland - Spánn  26 - 31
   26.01          Ísland - Frakkland