Sölvi Tryggvason, spjallþáttastjórnandi á SkjáEinum og Pressupenni, er nokkuð bjartsýnn um að íslenska landsliðinu muni vegna vel í þeirri undankeppni sem fer af stað í kvöld þegar liðið leikur gegn Noregi á Laugardalsvelli.
„Þetta er strembinn riðill með tveimur afburðagóðum liðum, Portúgal og Danmörku, auk þess sem Noregur státar bærilegu liði. Ég segi að við verðum fyrir ofan Noreg og Kýpur og stöndum okkur vel með ferskan mannskap á oddinum. Við munum veita Dönum keppni um annað sætið, en það þarf allt að ganga upp til að við náum því,“ segir Sölvi.
Hann segist fara allt of sjaldan á völlinn. „En það mun breytast. Vitiði til!“ segir hann. „Uppáhaldsleikmaðurinn minn í íslenska liðinu verður að vera Eiður Smári á góðum degi. Einfaldlega vegna þess að hann er svo fjandi góður í fótbolta þegar sá gallinn er á honum. Tæknilega höfum við ekki átt betri leikmann. Ég er líka hrifinn af Aroni Gunnarssyni á miðjunni. Hann er baráttujaxl með kraft og þol og ég hef trú á því að hann verði öflugur á komandi árum og eins Gylfi Sigurðsson,
Hver er besti fótboltamaður Íslands frá upphafi að mati Sölva? „Mér leiðist fortíðarþrá og stöðug tilhneiging manna til að göfga það sem gerðist í gamla daga. Eiður Smári hefur leikið með tveimur bestu félagsliðum heims á tímum þegar knattspyrnan er langstærsta íþrótt veraldar. Hann er okkar besti leikmaður fyrr og síðar, eins og sást strax þegar hann spilaði fyrir Val 16 ára gamall og var þá þegar orðinn yfirburðamaður hér heima. Ef meiðslin hefðu ekki komið til hefði hann náð enn lengra,“ segir Sölvi.
Skilaboð Sölva til íslensku landsliðsmannana eru einföld: „Berið höfuðið hátt og út með kassann!! Áfram Ísland!“
| Dagst. | Leikur | Úrslit |
|---|---|---|
| 16.01 | Ísland - Króatía | 29 - 31 |
| 18.01 | Ísland - Noregur | 34 - 32 |
| 20.01 | Ísland - Slóvenía | 32 - 34 |
| 22.01 | Ísland - Ungverjaland | 27- 21 |
| 24.01 | Ísland - Spánn | 26 - 31 |
| 26.01 | Ísland - Frakkland |