03.09.2010 / 23:05

Óverðskuldað tap gegn Norðmönnum

Óverðskuldað tap gegn Norðmönnum

Strákarnir okkar í íslenska landsliðinu biðu lægri hlut í sínum fyrsta leik í undankeppni Evrópumótsins. Þeir töpuðu 1-2 á Laugardalsvelli fyrir Noregi í kvöld.

Ísland átti ekki skilið að fara tómhent úr leiknum en sanngirni er ekki til í fótbolta. Strákarnir lögðu sig alla fram og voru óheppnir að vera ekki með stærri forystu en 1-0 í hálfleik.

Heiðar Helguson skoraði fyrir Ísland á 38. mínútu eftir laglegan undirbúning Gylfa Sigurðssonar. Miðjan var flott og mikil ógn af vængjunum í fyrri hálfleiknum. Nokkrar ákvarðanir ítalska dómarans voru vægast sagt sérstakar og ekki okkur í hag.

Seinni hálfleikurinn var ekki eins góður og Norðmenn tryggðu sér sigurinn með tveimur mörkum.

Urmull er þó af jákvæðum punktum, baráttuandinn var til staðar og það leyndi sér ekki þegar flautað var til leiksloka að strákarnir voru verulega svekktir. En það þýðir ekki að svekkja sig of mikið því næsta verkefni er strax á þriðjudag.

Liðið flýgur út til Danmörku á morgun og nær vonandi góðum úrslitum á Parken.

Facebook Icelandair

Samskiptamiðlar

Næstu leikir og úrslit

Dagst.LeikurÚrslit
16.01 Ísland - Króatía 29 - 31
18.01  Ísland - Noregur 34 - 32
20.01   Ísland - Slóvenía 32 - 34
   22.01          Ísland - Ungverjaland  27- 21
   24.01          Ísland - Spánn  26 - 31
   26.01          Ísland - Frakkland