03.09.2010 / 23:38

Upphitun Áfram Íslands klúbbsins í Kaupmannahöfn

Upphitun Áfram Íslands klúbbsins í Kaupmannahöfn

Áfram Ísland stuðningmannaklúbburinn er búinn að skipuleggja upphitun fyrir Danaleikinn.
Leikurinn verður núna á þriðjudaginn 7. september á Parken og byrjar kl 20:15 að staðartíma, 18:15 að íslenskum tíma.
Fyrir þá Íslendinga sem ætla á leikinn þá verður upphitunin á O´learys sportbar sem er staðsettur á aðalbrautarstöðinni í Kaupmannahöfn. Áfram Ísland klúbburinn mun bjóða uppá íslenska stuðtónlist og tilboð verður á veitingum.
Allir halda síðan saman á völlinn frá staðnum. Áfram Ísland stuðningsmanna vörurnar verða á sínum stað svo allir geti dressað sig upp í fánalitunum fyrir leikinn.

Facebook Icelandair

Samskiptamiðlar

Næstu leikir og úrslit

Dagst.LeikurÚrslit
16.01 Ísland - Króatía 29 - 31
18.01  Ísland - Noregur 34 - 32
20.01   Ísland - Slóvenía 32 - 34
   22.01          Ísland - Ungverjaland  27- 21
   24.01          Ísland - Spánn  26 - 31
   26.01          Ísland - Frakkland