Breytingar hafa orðið á landsliðshópnum. Þeir Birkir Már Sævarsson og Baldur Sigurðsson koma inn í hópinn í stað Grétars Rafns Steinssonar og Brynjars Bjarnar Gunnarssonar.
Birkir og Baldur fara því með til Danmerkur þar sem næsti leikur fer fram strax á þriðjudag. Liðið flýgur út seinni part laugardags.
Birkir leikur með Brann í Noregi og er eitilharður stuðningsmaður enska liðsins Leeds. Sagan segir að hann spili alltaf í Leeds-búningnum innanundir.
Baldur er Mývetningur sem leikur með KR. Hann hefur átt mjög gott sumar í Pepsi-deildinni og gengur undir gælunafninu smalinn.
Brynjar Björn var ekki í hópnum gegn Noregi í kvöld og er ljóst að hann verður ekki heldur með í Danmörku. Grétar Rafn var í byrjunarliðinu gegn Norðmönnum, en fór af velli vegna meiðsla og getur ekki tekið þátt í leiknum á þriðjudag.
| Dagst. | Leikur | Úrslit |
|---|---|---|
| 16.01 | Ísland - Króatía | 29 - 31 |
| 18.01 | Ísland - Noregur | 34 - 32 |
| 20.01 | Ísland - Slóvenía | 32 - 34 |
| 22.01 | Ísland - Ungverjaland | 27- 21 |
| 24.01 | Ísland - Spánn | 26 - 31 |
| 26.01 | Ísland - Frakkland |