Ísland leikur síðasta leikinn sinn á EM í dag klukkan 15.10. Mótherjinn eru Heims-, Evrópu- og Ólympíumeistarar Frakka. Það er ljóst að Króatar og Spánverjar fara upp úr okkar riðli í undanúrslit.
Staða Íslands er þannig að það getur ekki náð þriðja sæti riðilsins og spilað um fimmta sætið. Ísland getur mest komist í 4 stig með sigri í dag, en Slóvenar verða alltaf fyrir ofan Ísland vegna sigurs í innbyrðisviðureign.
Frakkar eru í sárum eftir að hafa dottið út og eru alveg brjálaður sökum þess. Kröfurnar eru eðlilega meiri. Það þarf ekkert að fjölyrða hve sterkt lið Frakkar hafa en það hefur ekki spilað vel í Serbíu.
Líklegt er að þeir strákar sem eru tæpir verði einfaldlega hvíldir. Strákar eins og Rúnar Kárason, Kári Kristján og Ólafur Guðmundsson stóðu sig allir með sóma í gær. Einnig væri gaman að sjá Aron Rafn koma aðeins í markið.
En það þýðir ekkert að pæla í hvað gæti hugsanlega gerst varðandi framtíðina, Ísland sækir alltaf til sigurs.
Styðjum strákana í lokaleiknum á EM, alla leið! Áfram Ísland!
| Dagst. | Leikur | Úrslit |
|---|---|---|
| 16.01 | Ísland - Króatía | 29 - 31 |
| 18.01 | Ísland - Noregur | 34 - 32 |
| 20.01 | Ísland - Slóvenía | 32 - 34 |
| 22.01 | Ísland - Ungverjaland | 27- 21 |
| 24.01 | Ísland - Spánn | 26 - 31 |
| 26.01 | Ísland - Frakkland |