Ísland og Frakkland gerðu jafntefli, 29-29 í lokaleiknum á EM. Ísland var miklu betra í fyrri hálfleik en Frakkar voru sterkari í þeim seinni. Hér er umfjöllun um leikinn:
1.-10. mínúta: 8-4
Róbert byrjaði á línunni, Þórir, Ásgeir, Arnór, Aron og Guðjón Valur byrjuðu í sókninni, Björgvin í markinu. Ísland komst í 3-0, fyrst góð sókn sem endaði með marki Robba af línunni og svo tvö hraðaupphlaup eftir varið skot Björgvins.
Það gekk allt upp í íslensku sókninni, Omeyer varði lítið í markinu. Karabatic spilaði ekkert og franska sóknin oft í vandræðum. Björgvin fann sig vel í markinu.
10.-20. mínúta: 12-7
Þórir kom muninum í fimm mörk og heillum horfnir Frakkar tóku leikhlé. Þeir fiskuðu sitt fjórða víti á 11 mínútum í kjölfarið.
Frakkar virkuðu háld áhugalausir og kærulausir, án þess að taka nokkuð af strákunum okkar. Björgvin varði víti og við héldum öruggri forystu og bættum við. Keyrðum hreinlega yfir Frakkana og Björgvin með 10 varin skot.
20.-30. mínúta - hálfleikur: 15-12
Frakkar reyndu að minnka muninn en gekk hægt, þeir gerðu mörg mistök í sókninni og það skein í gegn að þeim var alveg sama. Strákarnir héldu áfram að raða inn mörkunum. Rúnar átti flotta innkomu, sem fyrr. Heppnismark Frakka undir lokin var óþarfi. Strákarnir skoruðu aðeins þrjú mörk á síðustu 10 mínútum hálfleiksins.
30.-40. mínúta: 19-19
Frakkar byrjuðu vel og skoruðu fyrstu tvö mörkin. Sóknin gekk illa í upphafi hálfleiksins og Frakkar jöfnuðu metin og komust svo yfir. En Þórir jafnaði og Rúnar skoraði svo frábært mark.
40.-50. mínúta: 24-27
Frakkar komust tveimur mörkum yfir, þeir nenntu skyndilega að leika handbolta. Accambray var í aðalhlutverki hjá þeim, skoraði úr öllum skotum sínum á þessum kafla. Björgvin varði gott víti og Ólafur Bjarki kom inn á.
Aron Rafn kom í markið varði strax skot og svo annað skömmu síðar. Flott innkoma hjá enn einum nýliðanum.
50.-60. mínúta - úrslit: 29-29
Rúnar minnkaði muninn í eitt mark eftir að Aron varði sitt þriðja skot. Hann fékk góð ráð frá Björgvini af bekknum. Leikurinn var spennandi í lokin og Frakkar misstu mann af velli tæpum fjórum mínútum fyrir leikslok. Ólafur Bjarki jafnaði metin með flottu marki, skotið á 111km hraða.
Frakkar fóru í sókn þegar þrjár mínútur voru eftir. Eftir langa sókn fengu þeir á sig línu. Guðmundur tók leikhlé. Sending misheppnaðist og Frakkar fengu boltann þegar 100 sekúndur voru eftir.
Þeir fengu sjöunda manninn inn á og þegar mínúta var eftir skoruðu þeir af línunni. Ísland fór í sókn og þegar hálf mínúta var eftir sótti Arnór vítakast. Þórir tók það skoraði.
Frakkar fóru í sókn og tóku leikhlé þegar 13 sekúndur voru eftir. Skotið þeirra fór í Arnór og Aron varði auðveldlega í kjölfarið.
| Dagst. | Leikur | Úrslit |
|---|---|---|
| 16.01 | Ísland - Króatía | 29 - 31 |
| 18.01 | Ísland - Noregur | 34 - 32 |
| 20.01 | Ísland - Slóvenía | 32 - 34 |
| 22.01 | Ísland - Ungverjaland | 27- 21 |
| 24.01 | Ísland - Spánn | 26 - 31 |
| 26.01 | Ísland - Frakkland |