26.01.2012 / 06:05

Tíunda sætið niðurstaðan - Undankeppni ÓL næst

Ísland lauk keppni á EM í tíunda sæti af sextán þjóðum. Keppni lýkur um næstu helgi. Næsta verkefni landsliðsins er undankeppni Ólympíuleikanna.

Ísland spilar undanriðil í vor um laust sæti þar. Hverjum við spilum á móti kemur í ljós eftir EM, munið bara að styðja alla nema Serbíu til sigurs. Þá fer Ísland í léttari undanriðil. Vísir.is tók saman flotta grein um þetta flókna fyrirkomulag.

EM í ár var erfitt en strákarnir stóðu sig vel. Það er ekki hægt að horfa á mótið í heildina og segja annað, sér í lagi þegar menn eins og Snorri Steinn og Ólafur Stefánsson eru fjarverandi. Þá var Ingimundur ekki heill allan tímann, ekki frekar en Alexander.

Ungir strákar fengu eldskírn og voru frábærir. Það er virkilega jákvætt og framtíðin er björt.

ÍBS dregur sig í hlé í bili en þakkar kærlega fyrir samfylgdina á EM.

Áfram Ísland - Í Blíðu og Stríðu!

Facebook Icelandair

Samskiptamiðlar

Næstu leikir og úrslit

Dagst.LeikurÚrslit
16.01 Ísland - Króatía 29 - 31
18.01  Ísland - Noregur 34 - 32
20.01   Ísland - Slóvenía 32 - 34
   22.01          Ísland - Ungverjaland  27- 21
   24.01          Ísland - Spánn  26 - 31
   26.01          Ísland - Frakkland